Störf þingsins.
Herra forseti. Það er loksins að hilla undir það að hér náist samkomulag um þinglok. Það eru ýmis vonbrigði sem hellast yfir okkur í Flokki fólksins og þar á meðal eru það almannatryggingalögin sem á að keyra hér í gegn. Ekki fyrir það að við séum ekki ofboðslega glöð með þann árangur sem stjórnarandstaðan hefur náð í að fá breytingartillögur sínar samþykktar, eins og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson benti á í ræðu rétt á undan mér, heldur er það hitt að við höfum barist fyrir því í Flokki fólksins að öryrkjar fái að bjarga sér sjálfir og leita fyrir sér á vinnumarkaði án skerðingar um ákveðinn tíma. Við höfum byggt það á reynslu annarra landa, Norðurlanda og Hollands meðal annars. Þess vegna er það sárara en tárum taki að það er ekki bara verið að taka út almannatryggingalöggjöfina áður en hún er fullbær til að greiða um hana atkvæði heldur er verið að fjalla um öryrkja án þeirra. Við höfum þetta kjörorð: Ekkert um okkur án okkar. En hvar kemur það fram í þessu almannatryggingafrumvarpi? Það er ekki einu sinni vitað hvernig á að meta fólk til virkni. Það er ekkert verið að velta fyrir sér einstaklingnum sjálfum, hvernig staða hans er og hversu tilbúinn hann er andlega og líkamlega, hvernig sem það er. Hann skal bara þvingaður í starfsgetumat með góðu eða illu. Við í Flokki fólksins erum hreinlega miður okkar yfir því. Þetta frumvarp hefði þurft að bíða betri tíma, sérstaklega í ljósi þess að það á að spara 11 milljarða til 1. september á árinu 2025 sem áttu að koma til hækkunar á grunnframfærslu öryrkja. En nei, þeir peningar hafa verið eyrnamerktir og teknir frá til þess að borga fyrir þá samninga sem gerðir voru í síðustu kjarasamningum sem ríkið steig inn í þá.
Ég segi bara fyrir mína parta: (Forseti hringir.) Ég er gjörsamlega miður mín yfir þessum vinnubrögðum og hvernig það á að þvinga handónýtum málum í gegnum þingið án þess að þau séu fullunnin.