154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Fyrir fimm árum, fyrir nákvæmlega fimm árum núna um mánaðamótin, tóku gildi lög um kynrænt sjálfræði. Þá hafði Alþingi Íslendinga náð saman um mjög framsýn skref í þessum málaflokki. Allar götur síðan hefur ríkisstjórnin montað sig af þessu, með réttu vegna þess að þetta var stórt skref og mikilvægt. Það er hins vegar óskiljanlegt hvers vegna ríkisstjórnin virðist vera of upptekin til að hrinda í framkvæmd ýmsum aðgerðum sem fylgja þessum lögum. Ég hef varla tölu lengur á þeim fjölda fyrirspurna sem ég búinn að senda ráðherrum vegna eins lítils útfærsluatriðis í þessum lögum sem snýr að reglum varðandi búningsaðstöðu og salerni. Okkur sem ekki höfum reynt það á eigin skinni kann að virðast það lítilvægt en það skiptir fólk mjög miklu máli að vita hvort það getur komist á klósettið í vinnunni og hvort það getur skipt um föt í sundi óáreitt.

Það eru fimm ár liðin án þess að reglugerðir, sem eru nauðsynlegar til að innleiða lög um kynrænt sjálfræði á þessu sviði samfélagsins, hafi litið dagsins ljós. Umhverfisráðherra birti í janúar 2022 drög að reglugerð sem hefði náð utan um þetta. Síðan sagði hann í svari við fyrirspurn minni að það ætti að ljúka þeirri vinnu í lok febrúar 2023 og síðan væri vonast til að henni myndi ljúka í lok árs 2023. Nú bíð ég svara frá ráðherra um hvað því líði. Félags- og vinnumarkaðsráðherra svaraði mér hins vegar í gær. Það sem til hans heyrir er hjá Vinnueftirlitinu. Endurskoðun var boðuð fyrir fjórum árum. Hún átti að hefjast, í gömlu svari, við upphaf árs 2022 (Forseti hringir.) og svarið sem ég fékk í gær var í grófum dráttum dálítið pirrað og skýrt svar: (Forseti hringir.) Andrés, þú ert búinn að spyrja að þessu áður. Það var ekkert að frétta síðast og það er ekkert að frétta núna. (Forseti hringir.) Mér skilst að ráðuneytið hafi fyrst tekið upp símann í þessari viku (Forseti hringir.) þegar svarinu var skilað inn til að eiga það nauðsynlega samráð sem átti að hefjast fyrir fimm árum.

Forseti. (Forseti hringir.) Það er ekki hægt að monta sig af því að standa með hinsegin fólki (Forseti hringir.) en draga lappirnar þegar kemur að aðgerðunum til að hrinda þeim stuðningi í raunverulega framkvæmd.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma sem er tvær mínútur í störfum þingsins.)