154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Það er hægt að lesa helling í þann málefnalega fókus sem er í fjölmiðlum á lokametrum okkar hérna í þinginu. Það mál sem efst er á baugi hjá fólki í dag er bakslagið sem er hægt og bítandi að verða í fjölskyldumálum hér á landi og hefur orðið. Fjölskyldufólk á Íslandi er hreinlega að gefast upp og þekkir ekki lengur barnvæna velferðarríkið Ísland sem stefnir í einhverjar áttir sem við hreinlega þekkjum ekki. Nú liggja hérna fyrir samþykktir þingsins um hækkanir á fæðingarorlofsgreiðslum en þar mun skipta höfuðmáli hvenær barnið fæðist. Þetta er kunnuglegt stef. Foreldrar sem eiga von á barni í haust munu bera minna úr býtum en þau sem fá barnið sitt í hendurnar eftir áramót. Sömuleiðis munu þau sem eignast barn 2026 njóta góðs af því á kostnað þeirra barna sem fæðast fyrr.

Aldís Mjöll Geirsdóttir baráttukona skrifar kjarngóða grein í miðlana í dag um þá stöðu sem við erum í og segir á Vísi, með leyfi forseta:

„Langflestir foreldrar þurfa einhvers konar framhaldspróf í tetris til að láta dæmið sem líf barnafjölskyldna er á Íslandi ganga upp – og helst svakalega gott bakland til viðbótar. Basla við að ná endum saman með of lágum greiðslum úr fæðingarorlofssjóði þegar heimilið verður fyrir rosalegri tekjuskerðingu. Reikningarnir halda samt áfram að spýtast inn um lúguna heima.“

Forseti. Það hefur orðið, ég ítreka, raunverulegt bakslag í fjölskyldumálum og þessi ríkisstjórn getur ekki stillt upp breytingum á fæðingarorlofsgreiðslum sem nú liggja fyrir sem raunverulegum umbótum. Gerið það fyrir mig, gerið það fyrir mig, kæra ríkisstjórn, ekki kynna þessar breytingar sem sigur og skreyta ykkur með fjöðrum sem eru framtíðarmúsík og gagnast ekki fólki sem er að taka á móti barni núna. Það er ekki pláss í þverpólitísku byltingunni fyrir fólk (Forseti hringir.) sem stillir þessu svona upp. Svona viðhorf dæmir þessa flokka úr leik. (Forseti hringir.) Hækkum fæðingarorlofsgreiðslur fyrir alla foreldra í orlofi. Annað er óásættanlegt.