154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Það kom ekki á óvart hvernig atkvæði féllu í gær með vantrauststillögu Miðflokksins. Það hefði ekki getað farið öðruvísi nær óháð málefninu og það er það sem mig langar að gera hér að umtalsefni. Stjórnarandstöðuflokkar munu á eðlilegum tímum alltaf kjósa með vantrausti enda sitja ráðherrar ekki í skjóli þeirra. Hér á þinginu ríkir svo sú hefð að stjórnarflokkar munu alltaf kjósa gegn vantrausti, það er vond hefð.

Í gær voru rök stjórnarliða fyrir því að verja matvælaráðherra vantrausti m.a. þau að ráðherrann gæti ekki hafa gert neitt rangt, honum hefði ekki unnist tími til þess. En það voru þessir sömu stjórnarþingmenn sem höfðu áður lýst því yfir að ráðherra hefði brotið meginreglu stjórnsýslu og það í pólitískum tilgangi og með því sennilega bakað ríkissjóði gríðarlega mikinn kostnað. Önnur rök stjórnarliða voru að með vantrauststillögunni hefði verið vegið að ríkisstjórninni og þá þyrftu stjórnarliðar að standa saman og myndu eðlilega gera það.

Hér hefur nefnilega ríkt sú hefð að ef stjórnarflokkur ákveður að greiða atkvæði með vantrausti á einstaka ráðherra, tekur undir slíkt, þá jafngildir það vantrausti á ríkisstjórnina og það jafngildir stjórnarslitum. Þar með er raunverulega ekki bara búið að taka þetta tæki af stjórnarandstöðunni heldur múlbinda þingmenn meiri hlutans. Þetta er ekki í samræmi við þá stjórnskipan sem stjórnarskráin okkar mælir fyrir um.

Mig langar til að vísa í leiðara Morgunblaðsins í dag þar sem fjallað er um vantraust og vanda Alþingis, með leyfi forseta:

„Ábyrgð ráðherra gagnvart þinginu má ekki hanga á þolgæði annarra stjórnarflokka, hagsmunum um að halda völdum eða ótta við kosningar. […] þetta [er] vandi sem Alþingi verður að leysa eigi það að standa undir nafni og stöðu sinni í stjórnskipan landsins.“

Herra forseti. Ég tek heils hugar undir þessi orð í leiðara Morgunblaðsins.