Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Síðustu daga hefur verið vakin verðug athygli á stöðu nýbakaðra foreldra á samfélagsmiðlum. Ég varð sjálf móðir í fyrsta sinn í janúar á þessu ári og á því fimm mánaða gamlan son. Það eru sannarlega mikil gleðitíðindi að eignast barn en margir foreldrar eru í þeirri stöðu að hafa strax áhyggjur af dagvistunarmálum áður en barnið kemur í heiminn. Spurningar vakna um hvort ófædda barnið þeirra fái leikskólapláss við lok fæðingarorlofs eða hvort það komist til dagmömmu sem kostar hálfan handlegginn og oft þarf að borga staðfestingargjald eða tryggingu þótt barnið byrji ekki strax að nýta þjónustuna. Einnig hefur verið vakin verðug athygli á stöðu fjölburaforeldra sem eiga að lifa af með sömu tekjur í fæðingarorlofi og þau sem eiga eitt barn. Þið sem eigið börn vitið að það fylgir kostnaður hverju barni. Árið 2020 var stigið mikilvægt skref þegar fæðingarorlofið var lengt í 12 mánuði en staðan er því miður sú að barnafólk er ekki gripið af öllum sveitarfélögum með boð um leikskólapláss að loknu 12 mánaða fæðingarorlofi heldur er það algjör undantekning. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi talað fyrir hækkun á þaki fæðingarorlofs og því er einstaklega jákvætt að við séum að sjá það raungerast í skrefum næstu þrjú árin. Þetta er aðeins byrjunin á mikilvægri vegferð því fæðingarorlofskerfið þarfnast heildrænnar endurskoðunar með tilliti til þarfa allra foreldra.
Ég skora á þingheim að taka þetta mál alvarlega og skoða mál barnafólks af heilum hug. Það er fátt dásamlegra en að fá að vera foreldri en við verðum að huga vel að aðstæðum barnafólks í landinu og hlusta á áhyggjuraddir þess.