Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hér er átakanlegt að hlusta á örvæntingu stjórnarandstöðunnar sem kemur og talar niður góð mál sem verið er að afgreiða. En eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins er fæðingarorlof. Sterk tengsl nýfæddra barna við foreldra sína hafa mikil áhrif á allt lífið fram undan og rof á tengslum í frumbernsku getur að sama skapi haft langvinnar og flóknar afleiðingar. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur alltaf lagt ríka áherslu á að lengja þurfi fæðingar- og foreldraorlof. Við teljum afar mikilvægt að orlofið verði lengt úr 12 mánuðum í 18 mánuði. Ekki síður er mikilvægt að tryggja áframhaldandi jafna skiptingu milli foreldra til að stuðla að auknu kynjajafnrétti. Í dag eru fjölskylduform ólík því sem áður var og mikill fjölbreytileiki á því hvernig fjölskyldur eru saman settar. Hvort sem horft er til stöðu foreldra út frá kyni eða kynhneigð þarf alltaf að hafa í huga að sú lagaumgjörð sem við sköpum tryggi rétt barns til samvista við foreldra sína á jafnan og réttlátan hátt.
Virðulegi forseti. Undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði nú á vormánuðum skiptir samfélagið sköpum til næstu ára. Með öflugri aðkomu ríkisstjórnarinnar náðist mikilvægur árangur til jöfnuðar og stuðnings við barnafjölskyldur. Má þar nefna aðgerðir um hækkun á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði úr 600.000 kr. á mánuði í 900.000 kr. á mánuði í skrefum. Þessi hækkun er mikilvæg kjarabót fyrir fjölskyldur og stefnt að því að málið klárist nú á þessu þingi.
En aftur að lengingu fæðingarorlofs, virðulegi forseti. Því hefur fylgt mikið álag á foreldra að reyna að brúa það bil sem hefur verið á milli orlofs og dagvistunar. Lenging orlofsins er mikilvægt skref til að loka þessu bili sem hefur reynst mörgum fjölskyldum þungbært. Lenging fæðingar- og foreldraorlofs er liður í því að auka lífsgæði barna og foreldra og gera þetta dýrmæta tímabil streituminna. Ég fagna þessum áföngum innilega og trúi því að við séum á réttri leið að meiri jöfnuði og jafnrétti.