Störf þingsins.
Forseti. Afgreiðsla mála hér á þingi er dálítið sérstök og kannski ekki eins og maður býst við áður en maður kemur inn á þing. Í lok þessa þings er 151 þingmannamál í nefndum þingsins. Ekkert þeirra hefur fengið afgreiðslu á þann hátt að hægt sé að greiða atkvæði um hvort taka eigi það úr nefnd eða ekki, það er ekki einu sinni hægt að greiða atkvæði um það, merkilegt nokk. 131 þingmannafrumvarp, önnur þingmannafrumvörp, bíður þess að komast inn í nefnd. Við erum að tala um 282 þingmannafrumvörp sem meiri hlutinn, sem segist hafa fengið lýðræðislegt umboð til þess að sinna sínum verkum, lokar inni í nefndum.
Það er nú þannig að hver og einn þingmaður hefur lýðræðislegt umboð. Það að einhver flokkur eða þingmenn þess flokks fái lýðræðislegt umboð í kosningum ógildir ekki lýðræðislegt umboð annarra. En staðan er sú að nokkrir flokkar taka sig saman og mynda meiri hluta, ekki meiri hluta sem var kosinn heldur meiri hluti einstakra flokka sem voru kosnir, þingmenn þeirra. Þessir flokkar taka sér saman dagskrárvald og það vald er rosalega stórt. Það gerir það að verkum að þeir flokkar sem taka sér þetta vald, án þess að hafa í raun verið lýðræðislega kosnir til þess, geta komið í veg fyrir að 252 þingmannafrumvörp komist í umræðu eða til afgreiðslu þingsins. Þetta er ekki lág tala. Það hefur gerst af og til að eitt eða tvö þingmannafrumvörp frá hverjum þingflokki hafa verið afgreidd, en í þetta skipti núll af 282.