154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.

904. mál
[11:40]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er um mikið framfaraskref að ræða um aukið aðgengi að upplýsingum og yfir landamæri og þar með öflugri heilbrigðisþjónustu. Hér er tæknilega mál sem embætti landlæknis hefur unnið að um landstengingu á milli landa til að gera þetta kleift. Ég vil fyrst og fremst, hæstv. forseti, þakka hv. velferðarnefnd fyrir að standa saman að þessu framfaraskrefi hér með okkur í þinginu sem birtist í þeim breytingum við málið sem við staðfestum í 2. umræðu.