154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.

832. mál
[11:43]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa komið að því að vinna þetta mál. Almenna reglan er sú að ráðherrar eru ekki tilbúnir til að færa stofnanir sem undir þá heyra eitthvað annað og allra síst jafn merka stofnun og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Ég hafði hins vegar frumkvæði að því vegna þess að ég tel mjög mikilvægt að við gerum hlutina eins vel og hægt er, bæði með skilvirkni og hagræði að leiðarljósi. Ég er sannfærður um að það er heillaskref að Stofnun Vilhjálms Stefánssonar fari á þann stað sem hún er og ég veit að hæstv. háskólaráðherra mun fara vel með stofnunina hjá sér og þetta verði liður í því að styrkja bæði þá starfsemi og ekki síður Akureyri sem höfuðstað norðurslóða. Þess vegna greiði ég mjög glaður atkvæði með frumvarpinu mínu sem þarf kannski ekki að koma neitt sérstaklega á óvart.