154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[11:46]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla að nýta tækifærið hér um atkvæðagreiðsluna til að greina frá afstöðu okkar í Samfylkingunni til þessa máls. Við styðjum það að lögð sé fram heildstæð ferðamálastefna fyrir Ísland. Þetta er ofboðslega mikilvægt miðað við stærð greinarinnar. Ég vek hins vegar athygli á því að það er ekkert fjárframlag sem fylgir þessari ferðamálastefnu í núverandi fjármálaáætlun. Þetta er risastórt mál og ég veit að það var vilji til þess að koma fjármagni inn í fjármálaáætlun til að fjármagna þessa stefnu. Það fékkst ekki í gegn þannig að ég veit ekki hvort það muni þýða að endurskoða þurfi ákveðin atriði í komandi fjárlögum eða í næstu fjármálaáætlun. En þetta er eitt af mörgum málum sem við erum að taka fyrir á síðustu dögum þingsins þar sem ekki er fjármagn til að bakka upp þau þingmál sem fara hér í gegnum þingið.