Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegur forseti. Það er margt skrýtið sem gerist í þessu húsi og mörg skrýtin mál sem koma fram. Þetta fer í skrýtna hópinn. Matvælaráðherra leggur fram frumvarp um rafræna tengingu Verðlagsstofu skiptaverðs við Skattinn og Hagstofu Íslands. Svo kemur í ljós að þetta gengur ekki upp gagnvart Skattinum og Hagstofu Íslands. Það virðist vera eins og hæstv. matvælaráðherra hafi ekki talað við Skattinn og Hagstofu Íslands um þetta mál. Lög um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna eiga rætur að rekja til kjarasamninga árið 1995 við sjómenn. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp á þeim tíma til þess að tryggja sjómönnum að verðlag á afla sem er landað yrði rétt. Það er bókun núna hjá sjómannasamtökunum um að tryggja sjálfstæði þessarar stofnunar. Alþingi Íslendinga, með því að samþykkja þessi lög, þessa breytingartillögu, er ekki að virða hagsmunasamtök sjómanna, Félag skipstjórnarmanna, Félag vélstjóra og Sjómannasamband Íslands. Það er alveg klárt mál. (Forseti hringir.) Við skulum líka hugsa um það að verðlag á fiski innan lands er ekki tengt heimsmarkaðsverði. (Forseti hringir.) Það er umhugsunarefni fyrir okkur hér. Ekki tengt heimsmarkaðsverði. (Forseti hringir.) Það myndi ekki gerast í nokkru vestrænu ríki í heiminum sem er með markaðshagkerfi, engu.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að í umræðum um atkvæðagreiðslu hafa þingmenn eina mínútu til ræðuhalda en ekki lengri tíma.)