154. löggjafarþing — 129. fundur, 21. júní 2024.
Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
847. mál
Virðulegur forseti. Það er mjög mikilvægt að það sé mikið gagnsæi þegar kemur að því hvert verð á fiski er. Þetta frumvarp, eins og það var lagt fram, átti að vinna að því en með þeim breytingum sem urðu í nefndinni er sá hluti sem sneri að gagnsæinu dreginn til baka og munum við Píratar því ekki greiða atkvæði heldur sitja hjá í þessu máli.