Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegur forseti. Við í Viðreisn munum sitja hjá í þessu máli af því að það er lykilatriði að byggja enn frekar undir þessa mikilvægu stofnun. Í sjómannaverkfallinu 2017 kom berlega í ljós þessi mikla tortryggni sem er á milli útgerðarmanna og sjómanna þegar kemur að því að fá fram hvert hið raunverulega verð er fyrir aflaverðmæti hverju sinni. Hluti af því samkomulagi sem þá var gert var að ráðherra þáverandi, sem ég er eitthvað kunnug, skuldbatt sig til að bæta við starfsmanni á Verðlagsstofu skiptaverðs til þess að reyna að ná fram auknu gegnsæi til að vanda vel til verka í þessari vinnu. Það er ekki verið að stíga að fullu það skref hér í þessu máli að þetta verði til þess að ýta undir þetta gegnsæi. Þetta er skref í rétta átt en ekki nægilegt að okkar mati og því sitjum við hjá í Viðreisn.