154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[11:54]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða því að ef ekkert verður að gert mun það fyrirkomulag sem við búum við ógna þjóðaröryggi líkt og Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, benti á í bréfi til þjóðaröryggisráðs fyrir fimm árum síðan, árið 2019. Og fjármálastöðugleikanefnd hefur síðan þá mörgum sinnum áréttað í yfirlýsingum sínum mikilvægi þess að auka öryggi í innlendri greiðslumiðlun og loksins er brugðist við með þessu frumvarpi og því fögnum við í Samfylkingunni. Við í Samfylkingunni tökum þó undir með Neytendasamtökunum og Samtökum verslunar og þjónustu sem mæla gegn breytingartillögu meiri hlutans sem leggur til að neytendaverndin, sem var skrifuð inn í frumvarpið, verði tekin út. Krafan hlýtur alltaf að vera örugg og ódýr greiðslumiðlun þar sem gætt er að hag almennings alla leið og þess vegna leggjumst við í Samfylkingunni gegn breytingartillögu meiri hlutans.