154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[11:57]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta mál er mikilvægt varðandi öryggi í greiðslumiðlun. Breytingartillaga meiri hlutans er algjörlega út í hött. Hún er að svara ákalli Samtaka fjármálafyrirtækja um það að þeir geti hirt markaðinn. Seðlabanki Íslands tekur undir það og Alþingi Íslendinga, meiri hlutinn, ætlar að gera það líka. Það sem er að gerast er að það eru stórkostlegar tæknibreytingar í greiðslumiðlun og í framtíðinni munum við nota símann, app. Við erum þegar farin að nota þetta út af greiðslukortunum. Í framtíðinni verður það þannig að það verða strikakóðar til að tengja reikninga okkar við reikninga Bónuss og fleiri verslana.

En hvað á að gera? Jú, bankarnir ætla að hirða þennan markað. Með hverju? Með því að hækka gjaldið á það þegar við ætlum að gefa aðgang að okkar bankareikningum. Og líka annað. Þeir ætla að sjá til þess að ef það verða tæknilegir erfiðleikar þegar við erum við bónuskassann þá þurfi að fara í heimabankann og gefa þessum strikakóða heimild inni í heimabankanum. Það verður ekki sama hagræði og með debetkortin. Ef Alþingi Íslendinga ætlar virkilega ekki að sjá til þess að það verði samkeppni og óháðir aðilar (Forseti hringir.) komist inn á þennan markað erum við langt á eftir öðrum þjóðum. Við skulum hafa það í huga að árabátaöldin hætti á Íslandi 1904. Við vorum að veiða á árabátum þegar Frakkar voru á seglskipum. Munum við gera það sama í þessu máli líka?