Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Við Píratar styðjum þetta mál en erum andsnúin breytingartillögu meiri hlutans. Fram hafa komið mjög skiljanlegar áhyggjur af því að þetta geri bönkunum kleift að rukka óhóflega fyrir þjónustu sem nýir aðilar hafa sérstaklega verið að nýta sér. Við teljum að það hafi ekki komið fram nægilega sannfærandi rök fyrir því að svo sé ekki. Af þeim sökum erum við andsnúin þessari breytingartillögu meiri hlutans og teljum raunar að það komi ekki að sök, burt séð frá því hvað meiri hlutanum finnst, hvort heldur sem er. Við höfðum mjög gott tækifæri til að ná saman og vera samstiga um allt þetta mál miðað við hvernig þetta er búið að teiknast upp í nefndinni og því hefði ég mjög gjarnan viljað sjá meiri hlutann draga breytingartillögu sína til baka, en fyrst hann gerir það ekki þá neyðumst við til að greiða atkvæði gegn þeirri breytingartillögu.