Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Þetta er gríðarlega mikilvægt þjóðaröryggismál sem hefur verið unnið í nokkur ár. Það er fagnaðarefni að við skulum vera komin á þann stað að ætla að fara að lögfesta það. Það hefur verið góð samstaða í nefndinni varðandi málið. Eins og hér hefur verið bent á var haldinn sérstakur fundur með þeim sem sendu inn umsagnir eftir að frestur var liðinn og hlustað vel á þau sjónarmið og eins barst minnisblað frá Seðlabanka hvað það varðar. Ég tel mikilvægt að við pössum okkur á því að hlusta á þá sem eru að fara að hlutast til um þessa breytingu. Hún verður, held ég, afskaplega góð, líka út frá samkeppnissjónarmiði og ég hef ekki áhyggjur af því að bankarnir muni taka þessa greiðslulausn yfir. Það hefur verið farið vel yfir málið og ég geri ráð fyrir því að málið fái framgöngu hér. Framsókn mun að sjálfsögðu styðja það.