Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Eins og hefur komið fram í ræðum þingmanna er þetta mikilvægt mál og hefur verið til umfjöllunar allt frá árinu 2019. Viðreisn mun styðja þetta mál. Hins vegar er í þessu máli, eins og svo mörgum öðrum, kallað eftir umsögnum og svo kemur einhver breytingartillaga sem breytir eðli frumvarpsins, ekki bara í þessu máli heldur mörgum öðrum. Við erum að upplifa það þessa dagana. Þetta er ekki bara þjóðaröryggismál, þetta er líka neytendamál. Við vorum mjög sammála í nefndinni um þetta mál eins og það leit út í byrjun en við erum ekki sammála um að fella burt heimild Seðlabankans til að setja þak á nýtingu þessara grunninnviða sem skiptir fólk svo miklu máli. Þess vegna munum við vera rauð á þessari breytingartillögu. Að því sögðu er þetta mikilvægt mál og okkur ber að koma því í gegn, en helst án þessarar breytingartillögu.