Seðlabanki Íslands.
Forseti. Já, þetta mál, eins og fram kom hjá hv. þm. Guðbrandi Einarssyni, er mikilvægt út frá þjóðaröryggissjónarmiði en líka út frá neytendamálum. Ef það er eitthvað sem við hér í þinginu, alla vega stjórnarandstaðan, höfum lært þá er það að þessi ríkisstjórn getur ekki, kann ekki eða vill ekki taka tillit til sjónarmiða neytenda. Sú tillaga sem hér er, breytingartillaga frá meiri hlutanum, ógnar rétti neytenda og mér finnst það miður að þetta annars ágæta mál hafi breyst og farið í þennan farveg í nefndinni. Ég segi nei við þessari breytingartillögu en mun síðan greiða atkvæði með málinu.