154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[12:03]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu og fyrirtæki sem eru að baksa við að komast inn á þennan markað, óháð bönkunum, hafa öll varað við þessari breytingartillögu. Það er alveg undarlegt að þingmenn Sjálfstæðisflokksins skuli ekki hlusta á Samtök verslunar og þjónustu í þessu máli. Ég mæli með því, eftir þessa atkvæðagreiðslu, að þeir fari og lesi þá umsögn og líka umsögn Neytendasamtakanna. Einnig væri vert að lesa 36. gr. laga um greiðsluþjónustu, 37. gr. og 62. gr. Seðlabankinn ætti líka að gera það og lesa innganginn að PSD2, greiðsluþjónustutilskipun nr. 2 frá Evrópusambandinu. Hún fjallar um samkeppni á þessum markaði, um það að bankarnir megi ekki verðleggja of hátt og það megi ekki vera tæknilegar viðskiptahindranir. Þetta er grátlegt mál. Núna þurfa litlu fyrirtækin að kæra þetta til ESA, kæra þetta úr landi, svo að hægt sé að tryggja samkeppni á þessum markaði eða til samkeppnisyfirvalda. En við skulum kannski treysta á Brussel í þessu máli. Ég segi nei.