154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[12:09]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Núna áður en við greiðum atkvæði um þetta mikilvæga frumvarp er Ísland eitt fimm ríkja sem á ekki sjálfstæða og óháða mannréttindastofnun í Evrópu. Það breytist með samþykkt þessa frumvarps. Það er líka forsenda lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og er þess vegna gríðarlega mikilvægt skref í að innleiða þann samning í lög hér á Íslandi og er næsta stóra verkefnið í réttindabaráttu fatlaðs fólks. Það skiptir líka miklu máli hversu mikil samstaða er hér á þingi um þetta mál. Manni hlýnar um hjartaræturnar við það, því að þetta er grundvallarmál, þetta er mannréttindamál og mannréttindi skipta okkur öll máli.

Ég vil þakka stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir einkar góða vinnu við að klára þetta mál en ég vil líka nota tækifærið og fá að þakka fyrrverandi forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, fyrir hennar hlut í þessu máli, sem kom með málið hingað inn í haust (Forseti hringir.) og átti stóran þátt í því að það er komið á þann stað sem það er í dag. Til hamingju Ísland.