Mannréttindastofnun Íslands.
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt skref sem við erum að taka hér í dag. Viðreisn setti lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna mjög skýrt á dagskrá í síðustu kosningum. Þetta frumvarp er hluti af því að okkur auðnist að lögfesta samninginn. Það er skýr skylda okkar sem förum með stjórnina hverju sinni að gæta sérstaklega að rétti fatlaðs fólks. Við verðum að tryggja að því verði ekki mismunað á grundvelli fötlunar sinnar svo að það fái einfaldlega tækifæri til að taka virkan þátt í samfélagi, öflugu samfélagi sem okkur verður að auðnast að byggja upp saman. Fatlað fólk getur verið alls konar. Fötlun getur verið meðfædd eða vegna sjúkdóma eða slyss. Við verðum einfaldlega að gera ráð fyrir og taka tillit til fjölbreytileika mannlífsins. Við verðum að taka sérstaklega utan um þennan hóp. Þetta frumvarp er að hluta til að gera það og þess vegna er þetta fagnaðarefni. Við í Viðreisn munum að sjálfsögðu greiða atkvæði með þessu máli.