154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[12:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þingflokkur Miðflokksins mun greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi. Við teljum stofnanavæðinguna fulllangt gengna fyrir löngu síðan og það hafi verið haganlegri leiðir til að ná þessu markmiði fram, bæði hvað fjárhagslega hagkvæmni varðar og það að skapa betra flæði, utanumhald og fyrirkomulag þessara mála hér á landi. Við teljum þetta ekki góða lausn til að ná þeim markmiðum fram sem sett eru og þingflokkur Miðflokksins greiðir atkvæði gegn þessu máli.