Mannréttindastofnun Íslands.
Virðulegur forseti. Píratar setja mannréttindi alltaf í fyrsta sæti. Þau eru okkar leiðarljós í öllum okkar störfum hér á þingi. Því er mikið fagnaðarefni að þetta mál sem við höfum lengi talað fyrir, að við fáum hér sjálfstæða mannréttindastofnun, komist í gegn. Ég vil þakka fyrir samstarfið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd varðandi þetta mál, það var mjög gott og það er mjög gott að við náðum sameiginlegri lendingu allra flokka. Ég vil þó árétta það sem ég lagði mikla áherslu á í nefndarvinnunni, þ.e. að nægjanlegt fjármagn verði tryggt. Það kemur skýrt ákall um það frá allri stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og við þurfum að taka það upp á okkar arma að tryggja að svo verði í fjárlagavinnunni í haust, að það verði staðið við fyrirmæli þingmanna úr þingnefndinni sem fór með þetta mál.
Að lokum vil ég segja: Það er ánægjulegt að við erum að taka skref áfram í að fullgilda að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. En betur má ef duga skal. Við þurfum að borga persónulegum talsmönnum fyrir sína vinnu ef við viljum að það sé jafnt aðgengi að þeim og það þarf að gera meira í þeirri mikilvægu (Gripið fram í.) réttindabaráttu sem enn á eftir að vinna þegar kemur að réttindum fatlaðs fólks.