154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:23]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum núna atkvæði um mál sem er framlenging á bráðabirgðaúrræði sem er frá árinu 2021. Hér stafar það af því að það er hreinlega ekki pláss í fangelsum landsins. Það er óásættanleg staða með öllu. Það er hægt að gera úrbætur á þessu ástandi með öðrum hætti en að framlengja bráðabirgðaákvæði. Ég vek athygli á því að hér er Fangelsismálastofnun falið að útfæra það að í stað þess að fólk afpláni í fangelsum landsins þá afpláni það í formi samfélagsþjónustu. Fangelsismálastofnun hefur sætt aðhaldskröfu um árabil. Þetta er óviðunandi staða sem ætti að vera hægt að laga með allt öðrum hætti en lagt er upp með hér. Þá er ég hreinlega bara að tala um raunverulega fjármögnun á fangelsismálum í þessu landi, þessu örugga velferðarríki sem við búum í. Hér erum við að tala um grunnskyldu ríkisins. Við munum því ekki geta greitt atkvæði með þessu máli hér í dag. Við getum lagfært þetta með öðrum hætti.