154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:24]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Í umsögn Afstöðu, félags fanga, um þetta mál segir, með leyfi forseta:

„Til þess að fangelsismálin komist í lag þarf að gera heildarendurskoðun á lögunum um fullnustu refsinga og taka á málum eins og endurkomum í fangelsi, biðlista, atvinnu- og heilbrigðismál, vistunar og meðferðaráætlun og taka upp einstaklingsbundna heildræna endurhæfingarstefnu.“

Forseti. Hér er verið að framlengja bráðabirgðaákvæði sem var sett í lög árið 2021, til bráðabirgða. Það lýsir svo fullkomnu skeytingarleysi dómsmálaráðherra gagnvart fangelsiskerfinu, og föngum sérstaklega, að eftir þrjú ár eigi ekki að leggja hér fram heildarendurskoðun í málaflokknum til að bæta mjög svo slæmar og erfiðar aðstæður jaðarsettasta fólksins í samfélaginu okkar heldur framlengja ákvæði sem átti að vera til bráðabirgða. Þetta er ólíðandi staða, forseti, og þess vegna sitjum við Píratar hjá.