154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:25]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er verið að framlengja bráðabirgðaákvæði sem gilt hefur í þrjú ár, eins og fram hefur komið, um að Fangelsismálastofnun fái rýmri heimildir til að ákveða að menn afpláni með samfélagsþjónustu ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því. Þetta gildir þá um dóma sem ná allt að 24 mánuðum.

Mig langar að halda því til haga að þegar þetta var sett á fyrir þremur árum var talað um að fram ætti að fara heildarendurskoðun í málaflokknum og að stutt væri í þá endurskoðun. Ekkert bólar á henni enn þá og því erum við í þessari stöðu nú. Þessi framlenging á að stytta boðunarlista og koma í veg fyrir að refsingar fyrnist en í dag fyrnast refsingar á alvarlegum brotum eins og við þekkjum. Að bregðast við þessu með framlengingu á bráðabirgðaákvæði er gagnrýnivert og skýr vitnisburður um það hversu harkalega stjórnvöld vanrækja þennan málaflokk. Sú vanræksla á viðbragði verður að vera á ábyrgð stjórnarflokkanna en ekki Viðreisnar sem lengi hefur talað fyrir úrbótum í þessum málaflokki.