fullnusta refsinga.
Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um framlengingu á bráðabirgðaákvæði. Þetta er viðbragð við löngum boðunarlistum í fangelsum landsins. Það kom fram fyrir nefndinni að þetta úrræði væri að reynast frekar jákvætt í framkvæmd og að þetta geti skipt sköpum þegar kemur að betrun fanga í kerfinu okkar. Ég tel það reyndar gríðarlega jákvætt að við séum að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði til að tryggja betrun fanga. Það hefur komið fram fyrir nefndinni og er algerlega skýrt að heildarendurskoðun stendur yfir í málaflokknum. Þetta er stórt málefnasvið og það eru gríðarlega miklar áskoranir sem birtast okkur í þessum málum. Það er því mikilvægt að vandað sé til verka og ég treysti hæstv. dómsmálaráðherra vel til verksins. Það er eðlilegt að sú endurskoðun fari fram og það er líka eðlilegt að við framlengjum þetta bráðabirgðaákvæði að svo stöddu til að tryggja að ekki verði ófremdarástand í málaflokknum.