154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:28]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Píratar styðja endurhæfingar- og betrunarmiðaða stefnu þegar kemur að fangelsismálum. Við viljum því auðvitað ekki koma í veg fyrir að hægt sé að beita samfélagsþjónustu frekar en fangelsisvist, enda er það í mjög mörgum tilfellum miklu betra úrræði en fangelsisvist, sér í lagi miðað við ástandið í fangelsum landsins. Það sem ég vildi benda á hér aukreitis er að í þessari heildarendurskoðun, sem við höfum þurft að bíða eftir allt of lengi, þá finnst mér mjög mikilvægt að það verklag sem viðhaft er verði skoðað ofan í kjölinn eða bara regluverkið sem er til staðar, sem er það að Fangelsismálastofnun sé sú sem ákveður hvort viðkomandi fái samfélagsþjónustu eða fari í úrræði. Ég tel að þetta ætti að vera á höndum dómstóla, þetta ætti ekki að vera á höndum framkvæmdarvaldsins. Það situr ekki vel í mér þegar kemur að réttarríkinu að það sé svo að framkvæmdarvaldið ákveði refsingu. Ég tel að það ætti að vera hjá dómstólum.