154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Nokkur orð um þetta mál af því að hér þurfum við að geta rætt um það sem raunverulega er á seyði. Samfélagsþjónusta er mikilvægt refsipólitískt úrræði og því á að beita meira og því á að beita oftar og því á gjarnan að vera beitt af hálfu dómstóla. Samfélagsþjónusta vegna blankheita í kerfinu er töluvert annað úrræði og það er það sem er að gerast hér í dag. Við erum með nýlega skýrslu frá Ríkisendurskoðun sem segir okkur þá sögu að dæmdir kynferðisafbrotamenn, menn sem hafa hlotið dóma fyrir alvarlegustu ofbeldisbrot samfélagsins — dómar yfir þeim hafa fyrnst vegna þess að fangelsin hafa verið vanfjármögnuð á vakt Sjálfstæðisflokksins í dómsmálaráðuneytinu. Þetta er veruleiki málsins. Það eru óboðleg skilaboð til fangelsanna, til fanga, til samfélagsins, til þolenda alvarlegra brota, að vilji dómstóla á Íslandi geti ekki gengið eftir vegna þess að fangelsin eru vanfjármögnuð. Þetta eru dómar fyrir alvarleg kynferðisbrot sem fyrnast á vakt Sjálfstæðisflokksins í dómsmálaráðuneytinu.