Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Það er mjög ánægjulegt að við greiðum atkvæði um þetta mál í dag. Í desember sl. lagði hæstv. ráðherra fram skýrslu um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sem sett voru 2020. Þessi breyting snýr að rýmkun á reglum og skilyrðum um námsstyrk og þeirri veigamiklu og jákvæðu breytingu að við erum að afnema ábyrgðarmannakerfið að fullu. Svo er lagt til að endurskoðun haldi áfram á þessu ári til þess að bregðast við stöðu stúdenta enn frekar og þeim vanköntum sem birtust í skýrslunni um Menntasjóðinn. Þá vænti ég þess að við getum tekið dýpri umræðu um þær breytingartillögur sem liggja fyrir núna í heildarsamhenginu.
Mig langaði líka aðeins að fá að þakka nefndinni fyrir mikinn áhuga á þessum málaflokki. Sem fyrrum baráttukona í stúdentahreyfingunni finnst mér mjög jákvætt að heyra og sjá að það eru mjög sterkar raddir innan flestra flokka sem standa með stúdentum, því að þeir þurfa svo sannarlega á því að halda.