Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Stúdentar ná ekki endum saman, eiga að bera vaxtaáhættuna sem ríkissjóður ætti með réttu að bera í þessum málaflokki og það virðist ekki vera til nein sameiginleg sýn hjá þessari ríkisstjórn um það hvort námslán eða námsstyrkir eigi að vera almennur lánasjóður eða raunverulegt félagslegt jöfnunartæki sem felur í sér fjárfestingu í fólki sem sækir sér menntun. Við í Samfylkingunni erum auðvitað með aðra sýn á þennan málaflokk en þessi ríkisstjórn. Hins vegar tökum við skref í réttar áttir og fögnum því að verið sé að afnema ábyrgðarmannakerfið í þeirri mynd sem við höfum þekkt í dag, en erum aftur á móti hrygg yfir því að ekki hafi verið gengið lengra í því að minnka þá vaxtaáhættu sem virðist ætla að sitja á íslenskum námsmönnum um árabil. Sömuleiðis tek ég undir með þeim breytingartillögum sem fram hafa komið við þetta frumvarp og að (Forseti hringir.) við færumst nær því að skapa hér raunverulega sátt um raunverulegan menntasjóð námsmanna, sem nýtist raunverulega íslenskum námsmönnum.