154. löggjafarþing — 129. fundur, 21. júní 2024.
Menntasjóður námsmanna.
935. mál
Virðulegi forseti. Við erum hér að gera góðar og mikilvægar breytingar á kerfinu okkar. Við erum að standa með námsmönnum og fella niður ábyrgðarmannakerfið. Allt eru þetta góð og mikilvæg skref í átt að jöfnuði og rétti til náms. Vinnan í nefndinni hefur verið góð. Við höfum fengið umsagnir og gesti og erum að halda áfram á þessari vegferð. Það munum við í VG halda áfram að styðja því að við stöndum keik á bak við námsmenn þessa lands.