154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[12:37]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni að það er margt gott til í þessu en ég myndi gjarnan vilja, og Flokkur fólksins, að við gengjum enn lengra og felldum hreinlega niður verðtryggð lán. Það eiga allir að vera við sama borð, vissulega. Allir þegnar eiga að vera við sama borð og eiga líka að vera við sama borð þegar boðið er til skuldasúpu. Ég vil þess vegna segja að verðtryggt lán sem var upphaflega 4,6 milljónir árið 2004 er komið í 9 milljónir núna. Það mun enda við starfslok viðkomandi einstaklings í 20 milljónum. Ég skil ekki þetta fyrirkomulag og ég skil ekki af hverju við þurfum að hafa þetta fyrirkomulag þannig að þegar þú skuldbindur þig til náms þá sértu jafnvel skuldbundinn til æviloka.