154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[12:38]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við erum að greiða atkvæði um Menntasjóð námsmanna og afmarkaðar breytingar á því regluverki með tilliti til þeirrar reynslu sem komin er á Menntasjóðinn. Hér er hugsunin að rýmka skilyrði fyrir veitingu námsstyrkja og ábyrgðarmannakerfið er afnumið. Það er auðvitað verið að stíga ákveðin skref í rétta átt en það er hins vegar langur vegur að það sé verið að mæta öllu því sem námsmenn eru til að mynda að benda á, t.d. hvað varðar kjör og vexti. Hér langar mig sérstaklega að nefna vexti, hvað vaxtabrjálæðið í þessu landi bitnar ekki síst illa á námsmönnum. Það er auðvitað eitthvað sem við þurfum að hafa mjög verulega í huga. Sumt af þessu bíður þessarar heildarendurskoðunar sem boðuð hefur verið og við erum ansi oft í þeirri stöðu hér að vera að gera eitthvað en síðan bíður heildarendurskoðunin handan við hornið. Mig langar þá að brýna hæstv. ráðherra til að standa við þau orð. Það þarf auðvitað að koma til móts við þau sjónarmið sem til að mynda námsmenn hafa velt upp í þessu máli og tryggja námsmönnum betri afkomu og að allir sitji við sama borð þegar kemur að námi.