154. löggjafarþing — 129. fundur, 21. júní 2024.
Menntasjóður námsmanna.
935. mál
Frú forseti. Hér er verið að gera þá tillögu að framfærslulán sé ekki bara ákveðið í reglugerð heldur sé það fest þannig að upphæð lánsins í hverjum mánuði sé sú sama og grunnatvinnuleysisbætur. Það er hreinlega til skammar hversu lág framfærsluupphæðin er og það er von mín að við getum einhvern tímann gert það að verkum að nemendur geti lifað af þessum framfærslulánum.