Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Þessi breytingartillaga felur í sér að í lögum um Menntasjóð námsmanna hættum við að tala um trygga lántakendur og ótrygga lántakendur. Við vitum það öll að fátækir námsmenn eru ekki tryggir lántakendur. Markmið sjóðsins er félagslegt, þ.e. að tryggja að ótryggir lántakendur, fátækir námsmenn, geti stundað nám sitt. Ég tel að framtíðarmúsíkin eigi klárlega að vera sú að við hættum að fjalla um þetta. Ég veit að þær breytingartillögur sem eiga að koma til móts við ótryggu námsmennina með félagslegum úrræðum — það er langbest að hafa það eins og segir í umsögn Röskvu, stúdenta í Háskóla Íslands, hluta stúdenta í Háskóla Íslands; að þessi breytingartillaga miði að því að taka undir þau sjónarmið sem þar komu fram. Ég tel að það verði framtíðarmúsík að við tölum bara um námsmenn. Allir námsmenn eru eðli máls samkvæmt fátækir fjárhagslega en ríkir af öðrum hlutum.