Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Við Píratar eru með svipaða breytingartillögu og Flokkur fólksins, eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson útskýrði hér rétt áðan, en það snýr að því að taka úr lögunum að það þurfi að vera tryggir lántakendur til að fá lán hjá lánasjóðnum. Þetta þarf ekki að vera þarna. Hugmyndin með menntakerfið er að gefa öllum tækifæri til að stunda nám og ef við viljum raunverulega fjárfesta í fólki og tryggja að allir hafi aðgang að námi þá á það ekki að skipta máli hvort einhver sé tryggur eða ótryggur lántakandi. Fólk á bara að hafa aðgang að námslánum og námsstyrkjum. Við eigum að færa okkur mun meira yfir í styrkjakerfi heldur en er núna því að þetta er fjárfesting.