154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[12:45]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Hér er verið að leggja til tvær breytingar sem báðar snúa að því að gefa nemendum meiri sveigjanleika þegar kemur að því að ljúka námi. Þá er sérstaklega verið að horfa til þess að eins og kerfið er í dag getur fall í einum áfanga gert það að verkum að viðkomandi á ekki rétt á námsláni og þar af leiðandi er verið að lækka það lágmark eininga sem nemendur þurfa að standast og er það gert að norrænni fyrirmynd. Það er greinilegt að fólk má ekki falla í neinu, alla vega ekki hjá ríkisstjórnarflokkunum.