Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Þessi breytingartillaga er í anda þeirrar sem verið er að gera nú þegar af meiri hlutanum, þ.e. í tillögu meiri hlutans er gert ráð fyrir því að viðkomandi megi skipta um nám einu sinni. Hérna er einfaldlega verið að gefa þann valkost að geta skipt þegar nám hefur verið lagt niður en því miður gerist það að sumir byrja í námi sem síðan er ekki áfram í boði og lenda þar af leiðandi í vandræðum gagnvart lánasjóðnum eða Menntasjóðnum og hér er einfaldlega verið að bæta því inn að það sé sérstaklega tekið tillit til þess þegar þetta gerist.