154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[12:50]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Hér er verið að bæta inn heimild í lögin um að fella niður námslán hjá fólki sem lendir annaðhvort í verulegum fjárhagsörðugleikum eða alvarlegum og varanlegum veikindum. Þetta skortir í lögin eins og þau eru í dag. Það er hreinlega ekki leyfilegt fyrir sjóðinn að fella niður lán að hluta eða öllu leyti þegar fólk lendir í slíku ástandi. Það er von mín að hæstv. ráðherra skoði þetta nú samt í þeim breytingum sem á að skoða í haust. Það er mikilvægt að þetta sé hægt og hefur það komið fram, m.a. frá sjóðnum sjálfum, að þau vilji geta veitt þessar niðurfellingar í þeim tilvikum þegar virkilega þarf á þeim að halda.