Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Hér er um mikilvæga breytingartillögu að ræða. Hún lýtur að því að kröfur vegna námslána fyrnast ekki. Hún lýtur að því að fella út ákvæði í lögum um það að lög um gjaldþrotaskipti eigi ekki við um námslán. Hæstiréttur Íslands hefur ítrekað hafnað því að Menntasjóður námsmanna, sem áður hét Lánasjóður íslenskra námsmanna, hafi sérstaka hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að kröfur hans fyrnist ekki samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti. Það eru engir hagsmunir á bak við það sem segja það að námslán eigi ekki að fyrnast. Að sjálfsögðu fyrnast þau eins og aðrar kröfur. Þetta þýðir það að námsmenn eru með skuldabyrðina, jafnvel þó að þau fari í gjaldþrot, alveg fram á grafarbakkann. Það eru engir hagsmunir á bak við það. Hæstiréttur er búinn að segja það og við eigum að virða það og fara eftir því.