154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

opinber skjalasöfn.

938. mál
[12:56]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er frumvarp til að sjá til þess að Reykjavíkurborg og Kópavogsbær, tvö stærstu sveitarfélög landsins, þurfi að greiða Þjóðskjalasafninu samkvæmt gjaldskrá vegna þess að þau eru að leggja niður héraðsskjalasöfn sín. Við það stækkar Þjóðskjalasafnið um 30%. Menningarborgin Reykjavík, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO ætlar að leggja niður menningarstofnun þar sem sagan er geymd, bréfasöfn eru geymd. Sonur fyrrverandi forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra landsins, Bjarna Benediktssonar, gerði samning við héraðsskjalasafn Reykjavíkur um að taka við bréfasafni hans, nafna núverandi forsætisráðherra. En Reykjavíkurborg ætlar að leggja niður héraðsskjalasafnið. Þetta er algjört menningarleysi hjá höfuðborg þessa lands. Við eigum að sjá til þess að þeir verði ekki betur settir fjárhagslega við þá gjörð. Þetta er skref í þá átt. Ég kalla hér á menntamálaráðherra að sjá til þess í framtíðinni að þeir þurfi að greiða jafn mikið og þeir hafa þurft til að reka héraðsskjalasafn sitt.