154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[13:05]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Þetta er mikilvægt mál. Þetta tryggir jú skólamáltíðir barna sem ég hygg að við teljum öll mikilvægt að gera. En þetta er ekki óumdeilt. Það hefur m.a. verið bent á og menn viðrað áhyggjur af stöðu sveitarfélaga þegar greiðsluþátttöku ríkisins lýkur, í tengslum við tiltölulega nýgerða kjarasamninga. Önnur gagnrýni sem heyrst hefur er að hér er um að ræða fortakslausa niðurgreiðslu óháð tekjum foreldra. Og í ljósi þess að hér er um að ræða mikla fjármuni sem slegist er um má velta því fyrir sér hvort ekki hefði mátt staldra við og nýta þá fjármuni betur í þágu þeirra sem helst þurfa á því að halda. Þetta eru vangaveltur og áhyggjur sem mörg okkar í Viðreisn hafa tekið undir. En markmiðið er mikilvægt og markmiðið er gott og þingflokkur Viðreisnar mun því greiða þessu máli atkvæði sitt.