154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[13:06]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Eins og hér hefur komið fram þá er þetta mál afleiðing af útspili ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga, útspili sem fær reyndar útreið í umsögnum við fjármálaáætlun sem á enn þá eftir að koma hér til umræðu vegna vanfjármögnunar og vanáætlunar. Við getum öll staðið hér uppi og talað um mikilvægi þess að sjá gjaldfrjálsar skólamáltíðir en það vantar fjármagn fyrir fjölda aðgerða í tengslum við kjarasamningsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Ef við skoðum fjármálaáætlun þá sjáum við að eftir árið 2027 er ekki gert ráð fyrir að þetta kosti nokkurn skapaðan hlut. Í ofanálag er það þekkt fyrirbrigði að hér eru lögfestar ákveðnar breytingar og settar á herðar sveitarfélaganna sem síðan eru ekki fjármagnaðar almennilega til lengri tíma og af þessu hafa sveitarfélögin áhyggjur. Auðvitað getum við ekki lagst gegn máli sem þessu, því að hver getur hafnað því að styðja við gjaldfrjálsar skólamáltíðir barna? En umgjörðin skiptir máli og framtíðarfyrirkomulagið fyrir sveitarfélögin skiptir máli.