154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[13:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru ofboðslega öflugt verkfæri til að draga úr ójöfnuði í samfélaginu og vinna gegn fátækt barna. Þetta er frábært skref sem við erum að stíga hérna, en það er umhugsunarefni að það hafi þurft verkalýðshreyfinguna til að knýja þingið áfram í þessum aðgerðum. Ríkisstjórnin gerði þetta ekki að eigin frumkvæði heldur vegna þess að fjöldahreyfing vinnandi fólks náði að ýta þessu máli áfram og við þökkum fyrir það.

Mig langar að benda þingheimi á breytingartillögu sem liggur fyrir í málinu sem kemur til móts við hluta af áhyggjum sveitarfélaganna. Þau þekkja nefnilega allt of vel þá sögu að fá til sín verkefni sem ríkið segist ætla að fjármagna upp að einhverju marki en svo einhvern veginn fjarar undan þeirri fjármögnun eftir því sem á líður. Hér leggjum við til að bæta við því að ráðherra eigi við afgreiðslu fjárlaga á hverju ári á þessu tímabili að sýna fram á hver fjárþörfin er, hvað þurfi til þess að standa við 75% loforð ríkisins sem er undirritað í kringum kjarasamninga. Það ætti að vera meinlaust að samþykkja lagaákvæði sem er í samræmi við gefin loforð nema ríkið ætli ekki að standa við sín gefnu loforð.