154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[13:09]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að vera ósammála þeim sem talað hafa hér á undan mér. Mér finnst gjaldfrjálsar skólamáltíðir bara ekkert góð hugmynd, mér finnst það bara yfir höfuð frekar léleg hugmynd og ég lýsti því yfir við 1. umræðu um þetta mál. En það að hafa náð langtímakjarasamningum hér skiptir ofboðslega miklu máli og það var rosalega góð hugmynd. Og jafnvel þó að maður þurfi að kyngja því sem er ekkert sérstaklega góð hugmynd þá liggur hið stærra fyrir og það er að hafa náð þessum kjarasamningum. Það var mjög gott mál. Mér finnst mikilvægast að þetta sé þá gert í einhvers konar samstarfi við sveitarfélögin og að sveitarfélögin séu sátt við þá útfærslu sem boðið er upp á. Þess vegna mun ég greiða atkvæði með þessu máli vegna þess að ég ætla að hafa fulla trú á því að það sem stendur í nefndaráliti frá meiri hlutanum, að sveitarfélögum verði veitt svigrúm til að ákveða þá leið sem þau telja heppilegasta til að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir, muni verða ofan á þannig að sveitarfélögin geti útfært þetta með þeim hætti sem þau telja best. Og þannig mun ég styðja þetta mál.