154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[13:11]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það frumvarp sem hér er til afgreiðslu miðar að því að jafna stöðu barna og efla enn frekar fjölskylduvænt samfélag á Íslandi. Það stuðlar að jafnrétti og farsæld barna. Það markar þáttaskil í samningum aðila á vinnumarkaði með aðkomu stjórnvalda og sveitarfélaga að boðið verði upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Það eru grundvallarmannréttindi að öll börn njóti aðgangs að gjaldfrjálsum og góðum og hollum mat, óháð efnahag og aðstæðum foreldra og umsjónarfólks. Samþykkt frumvarpsins markar mikilvæg tímamót í að undirbyggja enn frekar það velferðarsamfélag sem við viljum eiga á Íslandi.

Varðandi umræðuatriði sem hér hafa komið fram í atkvæðaskýringu vísa ég í nefndarálit sem liggur fyrir.