154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

skák.

931. mál
[13:14]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um áhugavert mál sem er stuðningur ríkisins við skáklistina og breytt fyrirkomulag hvað það varðar að sjá til þess að það verði gert. Markmiðið með því er að við munum í framtíðinni eignast stórmeistara á alþjóðlega vísu, í fremsta flokki. Ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra er mikil í reglugerðarheimildinni sem hann fær til að útfæra það nánar. En ég vil líka vekja athygli á því að við málið barst umsögn frá Bridgesambandi Íslands. Bridds er reyndar eðlisólík íþrótt, hún er ekki fullkomlega gagnsæ, ekki einstaklingsíþrótt heldur liðaíþrótt þar sem menn halda spilunum þétt að sér. Bridgesambandið fer fram á að það verði svipaður stuðningur við Bridgesambandið eða briddsspilun í landinu og minnir á að þeir unnu jú Bermúdaskálina, eins og frægt er þegar forsætisráðherra tók á móti þeim í Keflavík á sínum tíma. Ég skora á hæstv. menntamálaráðherra að sjá til þess að við fáum kannski frumvarp til að styðja við þá merku íþrótt líka.