154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

listamannalaun.

937. mál
[13:17]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða mál sem Viðreisn styður. En mig langar þó að vekja athygli á því að það kemur auðvitað í ljós með þetta mál eins og mörg önnur við vinnsluna að það er ekki búið að gera ráð fyrir allri þeirri fjármögnun sem málinu þarf að fylgja. Við því var brugðist með því að gera til að mynda þá breytingartillögu að það verði tekinn út sjóður sem átti að bæta við, Vöxtur, sjóður fyrir unga listamenn, og það er miður að svo sé. En síðan er hitt sem ég vildi halda til haga að það er verið að fjármagna þetta að hluta með því að ganga á aðra sjóði listamanna á seinni hluta fjármálaáætlunar. Þeir sjóðir verða skertir talsvert mikið og mér finnst mjög mikilvægt að listamenn átti sig á því að ekki er eingöngu um að ræða nýtt fjármagn inn í listageirann með þessu frumvarpi. Þar undir heyra sjóðir á borð við Kvikmyndasjóð, myndlistarsjóð, Bókasafnssjóð höfunda, tónlistarsjóð, sviðslistasjóð og fleiri sjóði. Þannig að þótt málið sé gott finnst mér að listafólkið í landinu þurfi að vera meðvitað um þetta.